Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Ray Anthony tekur við Reynismönnum
Sigursveinn Bjarni Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Reynis, og Ray Anthony Jónsson við undirritun samningsins.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
sunnudaginn 16. október 2022 kl. 13:14

Ray Anthony tekur við Reynismönnum

Ray Anthony Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Reynis til næstu tveggja ára. Ray ætti að vera flestu knattspyrnufólki kunnugur en hann lék 336 leiki með Grindavík, Keflavík og GG á sínum ferli. Einnig á hann yfir 30 landsleiki fyrir Filippseyjar.

Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað lið GG, meistaraflokk kvenna hjá Grindavík og núna síðast yngri flokka félagsins. Ray er með UEFA A þjálfararéttindi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Það er ánægjulegt að hafa tekið þetta skref að þjálfa Reyni Sandgerði þar sem þetta er mikill fótboltabær.
Ég hlakka til að byrja, hitta strákana og hefja samstarfið með stjórninni,“ sagði Ray við undirskriftina.

Frétt og mynd: Reynir.is