Ramsay og Magnús áfram í Grindavík
Scott Ramsay og Magnús Björgvinsson hafa báðir skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Grindavík sem leika í 1. deild karla í knattspyrnu að ári.
Leikmennirnir voru báðir samningslausir en þeir hafa nú ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum í fyrstu deildinni næsta sumar en frá þessu er greint á vefsíðunni fótbolti.net.
Scott Ramsay var í minna hlutverki hjá Grindavík í sumar en oft áður en hann skoraði eitt mark í átján leikjum í Pepsi-deildinni.
Ramsay hefur leikið hér á landi síðan árið 1996 en hann hefur lengst af verið á mála hjá Grindavík.
Magnús skoraði þrjú mörk í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann var að leika sitt annað tímabil með Grindavík.