Rallýbílar á ferð og flugi um Suðurnesin
Aðalskoðunar rallýinu lauk um helgina
Aðalskoðunar rallý Akstursíþróttafélags Suðurnesja lauk um helgina eftir æsispennandi keppni. Suðurnesjamennirnir og núverandi Íslandsmeistarar, þeir Henning Ólafsson og Árni Gunnlaugsson, höfnuðu í þriðja sæti í keppninni að þessu sinni. Annað Suðurnesjatvíeiki, þeir Sigurður Arnar Pálsson og Brynjar Guðmundsson höfnuðu í 7. sæti. Bæði þessi lið aka á Subaru Impreza.
Farið var víða um Suðurnesin í keppninni en ökumenn fóru af stað um Nikkelsvæðið en svo var ekið að venju um hina sívinsælu leið um höfnina í Keflavík en þar voru fjölmargir áhorfendur mættir til þess að fylgjast með. Meðal annarra ökuleiða á Suðurnesjum sem var farið um helgina voru Djúpavatn, Stapafell, Helguvík og Stapi. Þess má geta að Sjónvarp Víkurfrétta var á staðnum og mun sýna frá keppninni í þætti sínum á ÍNN á fimmtudag klukkan: 21:30.
Lokastöðu og tíma frá rallýinu má svo finna hér.