Rall í Reykjanesbæ
Akstursíþróttafélag Suðurnesja, AÍFS, stóð fyrir rallkeppni á Suðurnesjum um nýliðna helgi. Meðal annars var rallað innanbæjar í Reykjanesbæ og veitt verðlaun fyrir lengsta stökkið á akstursleið um Nikkelsvæðið.
AÍFS veitti 100.000kr verðlaun fyrir lengsta stökkið á Nikkel B í boði en þessi verðlaun hlutu Baldur Arnar og Heimir Snær fyrir að stökkva lengst eða 21,5 metra á Nikkel B.
Meðfylgjandi syrpu tók Hilmar Bragi á stökksvæðinu.