Ragnheiður Sara í 2.-3. í Íslandsmótinu í Crossfit
Suðurnesjakonan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hafnaði í 2-3 sæti á Íslandsmótinu í Crossfit nú um helgina. Sara hefur stöðugt verið að bæta sig að undanförnu, en hún hefur náð frábærum árangri í mótum víða um heim. Fleiri keppendur frá Crossfit Suðurnes stóðu sig vel, en Hafdís Ýr Óskarsdóttir hafnaði í 9. sæti í kvennaflokki. Keflvíkingurinn Daníel Þórðarson hafnaði svo í 10. sæti karla.
Sara á verðlaunapalli um helgina (önnur frá hægri)