Ragnarselsbikarinn: Árlegt styrktarmót Þroskhjálpar á Suðurnesjum
13. júní n.k. fer fram árlegt golfmót Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Mótið fer fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Skráning er hafin á www.golf.is.
Mótsgjöld renna óskert til Þroskahjálpar á Suðurnesjum og er andvirði söfnunarfés sérstaklega ætlað til uppbyggingar á Ragnarseli þar sem Þroskahjálp rekur dagvistun fyrir fötluð börn á Suðurnesjum.
Aðal styrktaraðili mótsins er Norðurál en aðrir velunnarar mótsins eru Golfklúbbur Sandgerðis, Sparisjóðurinn og Landabankinn.
Mótið er punktamót með forgjöf, karla og kvennaflokkur; hámarksforgjöf 24 í karlaflokki og 28 í kvennaflokki. ??Vegleg verðlaun fyrir besta skor án forgj og fyrstu þrjú sætin í báðum flokkum með forgj.??Keppt er um Ragnarselsbikarinn (farandbikar) fyrir flesta punkta í mótinu??Nánarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins. ??Verðlaun fyrir lengsta teighögg á 8/17 braut vallarins. ??Sérstök verðlaun fyrir næstur holu eftir 2 högg á braut 7/16. ??Dregið úr skorkortum við mótsslit en þau verða sunnudaginn 14. júní.