Ragnar fer frá Njarðvík
Samstarfi Njarðvíkur og miðherjans Ragnars Nathanaelssonar verður ekki áframhaldið á næstu leiktíð. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur vill þakka Ragnari fyrir samstarfið og hans framlag til klúbbsins.
Ákvörðun Njarðvíkur og Ragnars var sameiginleg og skilja leiðir í bróðerni. Undirbúningur fyrir næstu leiktíð er þegar hafinn í Ljónagryfjunni og greinum við frá frekari gangi mála um leið og unnt er, segir í frétt frá Njarðvíkingum.
Samkvæmt heimildum VF höfu Njarðvíkingar frumkvæðið að því að slíta samstarfinu en Ragnar var með tveggja ára samning við félagið. Hann lék 25 leiki fyrir félagið og var með 8 stig, fráköst og 2 varin skot að meðaltali á 22 mínútum sem hann lék.