Púttmótaröð GS hefst í kvöld í HF - glæsileg verðlaun
Púttmótaröð GS hefst í kvöld í HF við Hafnargötu í Keflavík. Glæsileg verðlaun verða í boði. Mótin verða eins og undanfarið, á mánudagskvöldum frá kl. 19 til 21 og verða mótsdagar næstu tíu vikurnar og síðasta mótið 21. mars.
Keppt verður í þremur flokkum:
1. Barnaflokkur (fædd 1996 og síðar),
2. Forgjöf 11 og yfir
3. Forgjöf 11 og undir
Keppnisgjald er 500 kr. en ókeypis fyrir keppendur í barnaflokki.
Keppnisfyrirkomulag: Leiknir þrír 18 holu hringir og gilda tveir bestu hringirnir í hverju móti. Keppendur geti leikið oftar sama kvöld gegn greiðslu gjalds kr. 500 í hvert sinn.
Verðlaun er mjög glæsileg: Gjafabréf í Nettó að upphæð kr. 10.000 verða veitt í verðlaun fyrir sigur í hverjum flokki mótaraðarinnar, en verðlaunin fær sá sem er með lægsta samanlagða skor í 7 mótum.
Aukaverðlaun: ECCO golfskór að verðmæti allt að 20.000 kr. verða dregnir út í mótslok. Þeir sem hafa tekið þátt í eða greitt fyrir a.m.k. 7 púttmót eru í pottinum. Þátttakendur í barnaflokki skulu hafa mætt í sjö mótum af tíu til að eiga möguleika á að vera með í útdrætti.