Púttklúbburinn vann
Púttklúbbur Suðurnesja færði Íþróttafélaginu Nes 50 þúsund krona peningagjöf að loknu boccia móti sem efnt var til í byrjun árs. Hafsteinn Guðnason, formaður klúbbsins afhenti Nesfólki gjöfina.
Þátttakendur voru yfir 300 manns en svo fór að lokum að Púttklúbbur Suðurnesja sigraði en Lögreglan á Suðurnesjum varð í 2. sæti.