Powerade – bikarinn í kvöld

Njarðvíkingar mæta ÍR í Ljónagryfjunni en Njarðvíkingar slóu út nýliða Hattar frá Egilsstöðum. ÍR sló út 1. deildarlið Tindastóls.
Aðrir leikir eru:
KR - Snæfell
Skallagrímur – Fjölnir
Fyrri viðureign Keflavíkur og Grindavíkur í Powerade – bikarnum var seinkað fram á sunnudag, þegar hin liðin leika seinni leiki sína, vegna leiks Keflavíkur í Evrópukeppninni í gærkvöldi. Grindavík og Keflavík leika svo seinni viðureign sína þriðjudaginn 8. nóvember.