Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Power Camp Training
Miðvikudagur 16. ágúst 2006 kl. 11:51

Power Camp Training

Örn Steinar Marinósson stendur að nýju líkamsræktarnámskeiði í Perlunni sem hann nefnir Power Camp Training. Líkamsræktarnámskeiðið verður í anda heræfinga en með skynsamlegum hætti þar sem engin er herskyldan á Íslandi.

Örn Steinar hefur ráðið nafna sinn og matreiðslumanninn Örn Garðarsson til þess að segja þeim er sækja námskeiðið hvað þau eigi að borða og hvernig skuli matreiða hollustuna.

Í Power Camp Training þýðir ekki að mæta í besta æfingagallanum því fyrir liggja skriðæfingar í grasinu eða moldinni og einnig væri gott að þeir sem ætla að sækja námskeiðið hafi með sér grifflur og góða skó.

Æft verður í hvaða veðri sem er og í lok námskeiðsins mun Örn Garðarsson elda fyrir meðlimi námskeiðsins ljúffengan mat.

Skráning er í síma 869 8353, Örn Steinar.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024