Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Portúgalskur landsliðsmaður til liðs við Njarðvík
Raquel Laneiro. Mynd af umfn.is
Föstudagur 8. júlí 2022 kl. 11:12

Portúgalskur landsliðsmaður til liðs við Njarðvík

Njarðvíkingar styrkja lið sitt fyrir komandi leiktíð en portúgalski landsliðsmaðurinn Raquel Laneiro hefur samið við Íslandsmeistarana um að leika með þeim í Subway-deild kvenna fyrir á leiktíðinni 2022–2023.

Laneiro er 22 ára gamall leikstjórnandi sem hefur leikið með portúgalska landsliðini og U23 ára liði Portúgala.

Lavinia Joao Gomes Da Silva, sem nýverið framlengdi samningi sínum við Njarðvík, þekkir vel til Laneiro og hafa þær verið saman í portúgalska landsliðshópnum. Þá lék hún einnig eitt tímabil með Aliyuh Collier hjá Sportiva 2019–2020. Þá er Íslandstengingu Laneiro ekki enn lokið þar sem hún lék einmitt gegn Haukum á síðasta tímabili í EuroCup.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ég er rosalega spenntur að vinna með Raquel og tel að hún komi með fullt af hlutum að borðinu sem muni nýtast okkur vel. Hún er góður skotmaður og er vön að spila svona combo bakvarðastöðu þó við sjáum hana mest taka stöðu leikstjórnanda hjá okkur. Hún er einnig mjög dugleg varnarlega og það er mikilvægt því við munum halda áfram að leggja áherslu á að vera besta varnarlið deildarinnar!“ sagði Rúnar Ingi erlingsson, þjálfari Njarðvíkinga, í samtali við UMFN.is