HSS
HSS

Íþróttir

Pétur Þorsteinsson íþróttamaður Sandgerðis
Föstudagur 11. mars 2005 kl. 10:44

Pétur Þorsteinsson íþróttamaður Sandgerðis

Pétur Þorsteinsson, kylfingur var valinn íþróttamaður Sandgerðis af íþróttaráði bæjarins. Þrír íþróttamenn voru útnefndir, þeir Gauti Ottósson, körfuknattleiksmaður og Guðmundur Gunnarsson, knattspyrnumaður og Pétur, kylfingur. Þá fékk Nína Óskarsdóttir sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur fyrir leik sinn með Val í knattspyrnu og að vera valin í landslið Íslands. Útnefningin fór fram á fæðingardegi Magnúsar Þórðarsonar sem var stofnandi Knattspyrnudeildar Reynis og mikill áhugamaður um íþróttir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn