Petrúnella sá um Hamarskonur
Grindvíkingar sóttu sigur í Frystikistuna í Hveragerði, lokatölur 59-67, þegar liðin mættust í Domino's deild kvenna í gær. Það var fyrst og fremst ótrúlegur fjórði leikhluti sem færði gestunum úr Grindavík sigurinn, en þar fór Petrúnella Skúladóttir algjörlega á kostum. Hún skoraði 18 stig í leikhlutanum og var stigahæst Grindvíkinga í leiknum, ásamt því að taka 18 fráköst. Pálína Gunnlaugsdóttir átti einnig frábæran dag, skoraði 18 stig tók 10 fráköst og stal 6 boltum. Grindvíkingar eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar.
Tölfræði leiks: Hamar-Grindavík 59-67
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 24/18 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 18/10 fráköst/6 stolnir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 14/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 9/4 fráköst, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 2/5 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 0, Elsa Katrín Eiríksdóttir 0, Jeanne Lois Figeroa Sicat 0/4 fráköst, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 0, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 0, Ingibjörg Jakobsdóttir 0.