Patrik Redo til Keflavíkur
Patrik Redo er genginn til liðs við knattspyrnulið Keflavíkur og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Patrik er sænskur og lék með Fram í sumar. Hann er 26 ára gamall sóknarmaður og lék með Halmstadt og Trelleborg í sænsku deildinni.
Hann gekk til liðs við Fram í vor en átti í meiðslavandræðum í sumar og lék 11 leiki með Frömurum í Landsbankadeildinni.
Mynd: Patrik Redo er nýr liðsmaður í Keflavík.