Pálmi Rafn semur við Njarðvík
Pálmi Rafn Arinbjörnsson hefur skrifaði undir leikmannasamning við Njarðvík, en Pálmi Rafn er yngsti leikmaðurinn sem félagið hefur samið við. Pálmi Rafn sem verður 15 ára í nóvember er efnilegur markvörður og á að baki einn landsleik með U – 15 í vetur. Hann hefur staðið á milli stanganna bæði í 3. flokki og 2. flokki. Greint er frá þessu á umfn.is.