Páll krækti í gull á Heimsleikunum
Heimsleikum slökkviliðs- og lögreglumanna lauk í gær í New York en um 60 Íslendingar tóku þátt í leikunum og þar af voru 20 frá Suðurnesjunum. Á lokadeginum vann Ísland gullverðlaun í körfubolta eftir leik við lið slökkviliðs New York-borgar en í sigurliðinu eru nokkrir kunnir kappar og þ.á.m. Njarðvíkingurinn Páll Kristinsson sem nýlega lagði skóna á hilluna.
Íslenski hópurinn tók þátt í 15 greinum af 69 og vann til fernra gullverðlauna fyrir körfubolta, róður, sjómann og í samanlögðum lyftingum, tvennra silfurverðlauna fyrir bekkpressu og í samanlögðum lyftingum og þrennra bronsverðlauna fyrir bekkpressu.
Dagskrá leikanna riðlaðist nokkuð vegna fellibylsins Írenu en fresta þurfti keppni í nokkrum greinum vegna óveðursins, sem fór yfir New York fyrir rúmri viku.