Bygg
Bygg

Íþróttir

Þriðjudagur 3. febrúar 2004 kl. 10:40

Páll í banni í úrslitaleiknum. Njarðvík fær til sín nýjan Kana

Njarðvíkingar eiga í nokkrum vandræðum með leikmannahóp sinn fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Keflvíkingum um næstu helgi en Brenton Birmingham og Brandon Woudstra þurfa á kraftaverki að halda til að verða leikfærir fyrir laugardaginn. Þá verður Páll Kristinsson fjarri góðu gamni að öllum líkindum því hann á yfir höfði sér leikbann eftir að honum var vísað af leikvelli í leik Njarðvíkinga gegn Hamarsmönnum á sunnudaginn. Aganefnd KKÍ mun taka málið fyrir á fundi sínum á í dag og er úrskurðar að vænta seinni partinn í dag eða í fyrramálið. Séu engir formgallar á kæru dómara leiksins mun Páll verða úrskurðaður í leikbann sem tekur gildi föstudaginn næstkomandi. Páll hefur verið einn af burðarásum Njarðvíkinga í ár og hefur skorað yfir 16 stig og tekið ríflega 8 fráköst í leik í vetur og hefur aldrei spilað betur.

Njarðvíkingar hafa fengið nýjan erlendan leikmann, Larry Bratcher, til reynslu og mun hann að öllum líkindum spila með gegn liði Keflavíkur í úrslitaleiknum, en þessa stundina bíða Njarðvíkingar eftir keppnisleyfi fyrir hann.
Bratcher þessi er 29 ára gamall Bandaríkjamaður sem kemur frá Norður-Karólínufylki og spilaði með Fayettville State í háskólaboltanum en hefur farið víða á ferli sínum eftir það og m.a. spilað í Þýskalandi, Belgíu Kolumbíu og Jórdaníu.
Bratcher er 199cm á hæð og spilar bæði leikstjórnanda og skotbakvarðarstöðuna og þykir jafnframt nokkuð góður varnarmaður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn