Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Þriðjudagur 20. mars 2001 kl. 09:00

Páll Axel telur byrjunina skipta höfuðmáli í kvöld

Páll Axel Vilbergsson var bestur í annars jöfnu liði Grindvíkinga á sunnudag en lið Grindvíkinga hefur tekið stakkarskiptum síðan Billy Keys kom til liðsins og er verulega betra en 7. sætið í deildinni gefur til kynna. Páll Axel er einn leikmanna Grindvíkinga sem hefur verið á uppleið og hann átti stórleik í sigrinum síðasta sunnudag.

Varstu ánægður með leikinn á sunnudag?

"Ég er mjög ánægður með leikinn og vonandi heldur þetta áfram í kvöld."

Hvers vegna var svona mikill munur á liðinu á milli leikja?

"Við vorum í vandræðum með að halda uppi góðum æfingum fyrir fyrsta leikinn vegna veikinda leikmanna og við fundum aldrei taktinn í leiknum sjálfum. Svo fundu menn að bakið var komið að veggnum og þá spiluðu menn með hjartanu og uppskáru eftir því."

Hvernig lýst þér á leikinn í kvöld?

"Þetta verður erfitt í kvöld en við komum betur stemmdir en í fyrsta leikinn. Vitum hvað þarf til að stoppa stóru strákana þeirra. Við þurfum að byrja að krafti og láta þá ekki komast með neitt í upphafi. Þetta byggist allt á byrjuninni þarna á Sauðarkróki, gefi liðin heimamönnum tækifæri til að taka völdin verður leikurinn erfiður. Við ætlum ekkert að gefa þeim tækifæri til að koma sér vel fyrir. Öll pressan er á þeim og komum við til að nýta okkur það út í ystu æsar."
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024