Páll Kristins á heimleið
Landsliðsmaðurinn Páll Kristinsson, sem lék í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum sl. vetur, hefur ákveðið að leika aftur með gömlu félögunum í Njarðvík. Páll gerði tveggja ára samning við Njarðvík en nokkur Epson-deildar lið höfðu sett sig í samband við hann. Páll lék með Njarðvík áður en hann hélt til Bandaríkjanna og er öllum hnútum kunnugur. Páll lék með A-landsliðinu á smáþjóðaleikunum í júní og einnig gegn Sviss og Írlandi í forriðli Evrópukeppni landsliða. Það er því ljóst að Njarðvíkingar verða sterkir næsta tímabil. Visir.is greindi frá.