HSS
HSS

Íþróttir

Pálína samdi við Grindavík
Frá vinstri Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir, Pálína og Svanhildur Káradóttir.
Þriðjudagur 11. júní 2013 kl. 22:50

Pálína samdi við Grindavík

Pálína María Gunnlaugsdóttir mun leika með Grindavík í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð en hún samdi í kvöld við félagið. Í fréttatilkynningu frá Grindvíkingum segir:

„Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur/kvennaráð er stolt að tilkynna hér með að eftirsóttasti leikmaður á markaðnum í íslenskum kvennakörfuknattleik, Pálína Maíra Gunnlaugsdóttir hefur samið til tveggja ára við Grindavík. Sjórn og kvennaráð binda miklar vonir við Pálínu ekki bara vegna gæða hennar sem leikmanns heldur einnig hennar óseðjandi þrá til að sigra leiki og vinna titla.

Deildin telur hana vera frábæra viðbót við þær stelpur sem fyrir eru í Grindavík þar sem reynsla, gæði og efniviður eru fyrir hendi.“

Pálína hefur leikið með Keflavík undanfarin ár og varð þrefaldur meistari með Keflavíkurstúlkum á síðustu leiktíð. Um mikinn liðstyrk er að ræða fyrir Grindavík sem ætlar sér greinilega stóra hluti á næstu leiktíð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn