HSS
HSS

Íþróttir

Pálína María Gunnlaugsdóttir Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2011
Laugardagur 31. desember 2011 kl. 14:12

Pálína María Gunnlaugsdóttir Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2011

Pálína María Gunnlaugsdóttir, körfuknattleikskona úr Keflavík var kjörinn Íþróttamaður ársins í Reykjanesbæ nú fyrir skömmu en athöfnin fór fram í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur.

Pálína sem einnig er Íþróttamaður Keflavíkur náði einstökum árangri á árinu 2011 en hún var besti maður meistaraflokks kvenna sem var bæði Íslands- og bikarmeistari í vor.

Pálína náði eins og fyrr segir frábærum árangri á árinu og meðal afreka hennar eru:

Hún var valin í 5 manna úrvalslið Icelandexpressdeildar kvenna fyrir síðasta tímabil. Hún var einnig valin besti leikmaður Íslands og bikarmeistara kvenna. Var í úrvalsliði Keflavíkur, ein af 5 bestu leikmönnum bæði karla og kvennaliðs Keflavíkur. Valin í landsliðshóp sem kemur saman nú á milli jóla og nýárs. Pálína hefur verið leikmaður í öllum yngri landsliðum Íslands og hefur verið fastamaður í A- landsliði Íslands síðan 2006.

Mynd/EJS: Pálína María með bikaraflóðið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn