Pálína Gunnlaugsdóttir til Keflavíkur
Körfuknattleikskonan Pálína Gunnalugsdóttir skrifaði í dag undir eins árs samning við Keflavík, en Pálína, sem hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin tvö ár, yfirgefur þar með margfalda meistara í Haukum.
Eftir að samningurinn var í höfn sagði Pálína í samtali við Víkurfréttir að hún hafi ákveðið að skipta um umhverfi en hún var viss um að Haukaliðinu myndi reiða vel af þó hún og Helena Sverrisdóttir hafi yfirgefið liðið.
Birgir Bragason, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur var að vonum sáttur við þann happafeng sem Pálína er vissulega. „Takmarkinu er náð. Hún er síðasta stykkið sem okkur vantaði í liðið.“Pálína er einungis tvítug að aldri, en hefur á skömmum tíma skapað sér sess sem einn besti leikmaður landsins og var fyrirliði Hauka ásamt Helenu Sverrisdóttur, en í sameiningu lyftu þær öllum tiltlum sem í boði voru síðasta ár. Hún skoraði tæplega 10 stig að meðaltali í leik, gaf um 3 stoðsendingar, tók rúmlega 4 fráköst og stal um 2 boltum.
Hún var eftir leiktíðina valin varnarmaður ársins og einnig prúðasti leikmaðurinn.
VF-myndir/Þorgils - Pálína ásamt Jóni Halldóri, þjálfara, og Birgi Bragasyni, formanni körfuknattleiksdeildarinnar.