Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Pálína ekki áfram hjá Keflavík
Fimmtudagur 6. júní 2013 kl. 20:43

Pálína ekki áfram hjá Keflavík

Vill nýjar áskoranir

Í dag varð ljóst að Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos deild kvenna í körfubolta,  mun ekki framlengja samning sinn við félagið en þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur í dag. Pálína vill reyna fyrir sér á öðrum vígstöðum en ekki er ljóst hvar það verður að svo stöddu. Pálína var á tímabilinu valin besti leikmaðurinn og var í broddi Keflavíkurliðsins sem varð deildar-, bikar-, og Íslandsmeistari þar sem Pálína var með 16,3 stig, 5,6 fráköst og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik.

Á heimasíðu Keflvíkinga segir:

Samningaviðræður milli Keflavíkur og Pálínu hafa staðið yfir í talsverðan tíma og varð félaginu fljótlega ljóst að erfitt yrði að verða við óskum leikmannsins auk þess sem hennar hugur virtist stefna annað. Pálína gaf að lokum andsvar við tilboði Keflavíkur í dag með þeim rökum að hún vildi takast á við nýjar áskoranir en þakkaði félaginu þó um leið fyrir þau 6 góðu ár sem hún lék með liðinu. Hún vildi þó ekki gefa upp hver hennar næsti áfangastaður yrði.

Keflavík vill nota tækifærið og þakka Pálínu fyrir þau 6 ár sem hún hefur leikið með liðinu. Á þessum tíma hefur liðið verið sigursælt og unnið fjölda titla, líkt og það gerði áður en Pálína kom til liðsins og líkt og félagið mun gera um ókomin ár. Það þarf vart að tíunda það fyrir stuðningsmönnum félagsins að innan raða Keflavíkur er fullt af ungum og bráðefnilegum leikmönnum sem munu án efa sjá þetta sem tækifæri til að láta ljós sitt skína. Það er því von Keflavíkur og trú að aðrir leikmenn liðsins komi til með að sanna hið fornkveðna, að maður komi í manns stað!

www.keflavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024