Óvænt tap Keflvíkinga gegn botnliði ÍR í Hellinum
- Keflavík sjötta sæti og útlit fyrir hörkubaráttu fyrir úrslitakeppnina
Liðsheild ÍR skóp óvæntan sigur gegn Keflavík í Dominos deild karla í kvöld. Sigurinn var naumur þar sem að lokatölur voru 78-76. ÍR var fyrir leikinn í botnsæti deildarinnar en náði að koma sér upp í 10. sæti með þessum sigri.
Keflavík er í sjötta sæti með 16 stig en leikurinn var afar mikilvægur í stöðubaráttunni fyrir átta efstu sætin og úrslitakeppnina. Keflavík er í sjöunda sæti með 16 stig en fjögur lið eru með 16 stig.
Davon Usher fór fyrir liði Keflavíkur með 26 stig en Guðmundur Jónsson skoraði 14 og Valur Orri Valsson var með 11. Í liði ÍR skoruðu fjórir leikmenn yfir 10 stig og Matthías Orri Sigurðarson var stigahæstur með 17 stig.
ÍR-Keflavík 78-76 (24-22, 20-20, 15-12, 19-22)
ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 17/10 fráköst/6 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 14/6 fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir, Kristján Pétur Andrésson 12/5 fráköst, Trey Hampton 12/12 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 7, Ragnar Örn Bragason 7/5 fráköst, Hamid Dicko 5, Pálmi Geir Jónsson 4, Daníel Freyr Friðriksson 0, Dovydas Strasunskas 0, Sæþór Elmar Kristjánsson 0, Kristófer Fannar Stefánsson 0.
Keflavík: Davon Usher 26/6 fráköst, Guðmundur Jónsson 14, Valur Orri Valsson 11/5 stoðsendingar, Damon Johnson 9/5 fráköst, Reggie Dupree 9, Andrés Kristleifsson 5, Davíð Páll Hermannsson 2, Þröstur Leó Jóhannsson 0/5 fráköst, Hilmir Gauti Guðjónsson 0, Gunnar Einarsson 0, Eysteinn Bjarni Ævarsson 0, Tryggvi Ólafsson 0.
Staða:
1 KR 17 16 1 1674 - 1383 32
2 Tindastóll 17 13 4 1622 - 1456 26
3 Stjarnan 17 10 7 1502 - 1465 20
4 Njarðvík 17 10 7 1469 - 1400 20
5 Þór Þ. 16 9 7 1504 - 1515 18
6 Keflavík 17 8 9 1415 - 1465 16
7 Snæfell 17 8 9 1501 - 1515 16
8 Grindavík 17 8 9 1501 - 1528 16
9 Haukar 16 8 8 1407 - 1383 16
10 ÍR 17 4 13 1444 - 1524 8
11 Fjölnir 17 4 13 1416 - 1590 8
12 Skallagrímur 17 3 14 1358 - 1589 6