Bygg
Bygg

Íþróttir

Ótrúleg endurkoma Keflvíkinga
Laugardagur 17. janúar 2015 kl. 14:43

Ótrúleg endurkoma Keflvíkinga

Þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum í 4-4 jafntefli

Keflvíkingar nældu sér í jafntefli eftir magnaða endurkomu gegn ÍBV í fótbolta.net mótinu í Reykjaneshöll í dag. Lokatölur 4-4 ,en Keflvíkingar voru 1-4 undir þegar aðeins sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Staðan var þegar orðin 1-4 í hálfleik fyrir gestina, en það var Hólmar Örn Rúnarsson sem skoraði mark Keflvíkinga úr vítaspyrnu.

Þegar svo 83 mínútur voru liðnar af leiknum skoraði Sigurbergur Elisson fyrir Keflvíkinga og minnkaði muninn í 2-4. Aftur var Sigurbergur á ferðinni þegar venjulegur leiktími var liðinn, staðan 3-4. Í blálokin brutu Eyjamenn svo á Bojan Ljubicic í vítateignum og Magnús Þórir Matthíasson jafnaði metin úr vítaspyrnunni. Keflvíkingar eru með eitt stig eftir tvo leiki í mótinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn