Bygg
Bygg

Íþróttir

Óskar með sigurmark fyrir KR
Þriðjudagur 23. janúar 2007 kl. 08:45

Óskar með sigurmark fyrir KR

Njarðvíkingurinn Óskar Örn Hauksson tryggði KR sigur á Fjölni í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gær. Óskar lék með Grindavík síðustu tímabil en skipti yfir í KR að loknu síðasta tímabili þegar ljóst var að Grindavík myndi leika í 1. deild að ári.

 

Fjölnismenn komust í 1-0 en KR-ingar jöfnuðu og skömmu síðar komust þeir yfir í síðari hálfleik þegar Óskar prjónaði sig í gegnum teiginn og skoraði með góðu skoti og tryggði KR sigurinn.

 

VF-mynd/ [email protected] - Óskar í þeim gula á síðustu leiktíð

Bílakjarninn
Bílakjarninn