Öruggur sigur Njarðvíkinga í fótboltanum
Njarðvík sigraði Álftanes 4-0 í Lengjubikarnum í fótbolta í vikunni. Njarðvíkingar dreifðu markaskorun bróðurlega á milli sín, en þeir Bergþór Ingi Smárason, Brynjar Freyr Garðarsson, Theodór Guðni Halldórsson og Andri Fannar Freysson skoruðu mörkin fyrir þá grænklæddu.
Njarðvík er í þriðja sæti B-riðils með sex stig eftir þrjá leiki.