Öruggur sigur Keflvíkinga
Keflavík vann nokkuð öruggan sigur á Álftanesi í Faxaflómaótinu en leikið var í Reykjaneshöllinni á föstudagskvöldið. Þrátt fyrir að lokatölurnar gefi það ekki endilega til kynna, en leiknum lauk 2-0 fyrir Keflvíkinga. Keflvíkingar voru sterkari allan tímann og áttu klárlega að setja fleiri mörk. Álftanesstúlkur fengu ekki færi í leiknum á meðan Keflavíkurstelpur stjórnuðu leiknum og fengu mikið af færum.
Fyrsta markið kom strax á 3. mínútu og þar var að verki Nína Ósk Kristinsdóttir með frábært skot af 40 metra færi í vinkilinn. Hún var síðan aftur á ferðinni á 26. mínútu með gott skot og kom Keflavík í 2-0 og þar við sat sem fyrr segir. Prýðis leikur hjá Keflvíkingum og virðist vera númer eitt hjá þeim vera að hafa gaman af því sem þær eru að gera.
Mynd: Nína Ósk er dugleg að skora mörkin að venju.