Bygg
Bygg

Íþróttir

Öruggur sigur Keflavíkurstúlkna
Laugardagur 20. apríl 2013 kl. 20:26

Öruggur sigur Keflavíkurstúlkna

sigruðu KR með 18 stiga mun í fyrsta leik úrslitanna.


„Við náðum að halda þeirra bestu leikmönnum í skefjum. Það hafði sitt að segja í þessum sigri,“ sagði Bryndís Guðmundsdóttir, einn af lykilmönnum Keflvíkurstúlkna eftir öruggan sigur á KR í fyrsta leik úrslitakeppninnar í Domino's deildinni í körfubolta í Toyota höllinni í Keflavík í dag.
 
Keflavíkurstúlkur náðu 19-4 forystu í upphafi leiks og voru í raun allan leikinn skrefinu á undan KR þrátt fyrir að vera, að því er virtist ekki að leika á fullu „gasi“ eins og stundum er sagt. KR náði með tíu stigum í röð að jafna leikinn 29-29 þegar flautað var til leikhlés.

KR hélt í við heimadömurnar fyrstu tvær mínútur þriðja leikhluta en síðan juku Keflvíkingar smátt og smátt forystuna. Þær héldu útlendingnum þeirra, Shannon McCallum í 26 stigum en þar er á ferðinni án nokkurs vafa besti leikmaður deildarinnar. Frammistaða hennar í nokkrum leikjum hefur skilað KR sigri í nokkrum leikjum og því höfðu margir stuðningsmanna Keflavíkur áhyggjur af henni. Keflavíkurstúlkur náðu að verjast vel en sóknin gekk ekk nógu vel í fyrri hálfleik. Það lagaðist í þeim seinni og fjórar þriggja stiga körfur þeirra í þriðja leikhluta voru grunnurinn að því að þær stungu þær röndóttu af og þegr yfir lauk munaði 18 stigum í lokin, 70-52.

Stigahæstar hjá Keflavík voru Jessica Ann Jenkins með 23 stig og lék mjög vel. Birna Valgarðs var með 14, Ingunn Embla Kristínardóttir skoraði 12 og Pálína Gunnlaugsdóttir skilaði 8 stigum.

Keflavík-KR 70-52 (18-14, 11-15, 18-12, 23-11)

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Birna átti góðan leik gegn KR. Hér skorar hún tvö af fjórtan stigum sínum.

McCallum skoraði helming stiga KR liðsins í kvöld. Hér er hún að skila þristi í körfuna. VF-myndir/pket.