Öruggur sigur Grindavíkur/Njarðvíkur sem fara í úrslit Mjólkurbikarsins
Grindavík/Njarðvík tryggði sér sæti í úrslitum eftir sannfærandi 3-0 sigur gegn Fram í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna sem fram fóru á Lambhagavellinum í dag. Sigur gestanna var aldrei í raunverulegri hættu og stýrðu þær leiknum með miklum yfirburðum frá upphafi til enda.
Leikurinn fór af stað af krafti og gestirnir komust yfir strax á 18. mínútu þegar Hannah McLaughlin braut ísinn og kom Grindavík/Njarðvík í 1-0. Baráttan var mikil í fyrri hálfleik og nældu bæði lið sér í gul spjöld, en staðan var 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.
Gestirnir mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og á 51. mínútu tvöfaldaði Hildur Katrín Snorradóttir forystuna í 2-0. Sóknarþungi og öryggi Grindavíkur/Njarðvíkur skilaði sér svo loks á 76. mínútu þegar Natasha Moraa Anasi skoraði þriðja markið og gerði út um leikinn eftir hornspyrnu.
Eftir það varð leikurinn nokkuð kaflaskiptur og mikið var um skiptingar á lokamínútunum hjá báðum liðum. Fram náði ekki að ógna forystunni og fagnaði Grindavík/Njarðvík verðskulduðum og öruggum 3-0 sigri í leikslok.
Gylfi Tryggvason: „Ég ákvað að vera úrslitamiðaður í bikarnum“
Grindavík/Njarðvík tryggði sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna með öruggum 3-0 sigri á Fram. Liðið, sem er nýliði í Bestu deildinni og hefur gengið í gegnum miklar mannabreytingar í sumar, mætir Þrótti í úrslitaleiknum. Gylfi Tryggvason þjálfari liðsins hafði þetta að segja á RÚV strax eftir leikinn:
„Hugarfarið var frábært. Þessi nálgun á leikinn virkaði bara vel, að spila hann af hugrekki og gleði, sem mér finnst einkenna okkar lið. Þegar við náum því upp er erfitt að stoppa okkur.“
— Ykkur var spáð falli beint aftur úr deildinni, en þú varst brattur fyrir mót. Leyfðir þú þér að dreyma um bikarúrslit?
„Ég hef ekkert pælt mikið í því sko. Við erum bara að fókusa á frammistöðu eins og öll lið eru að gera í dag og alla dreymir um úrslit. Ég ákvað reyndar fyrir bikarinn að mig langaði að prófa að vera úrslitamiðaður í bikarnum, þannig að ég er aðeins að brjóta þetta upp hérna. Það hefur gengið vel, kannski værum við bara að verða Íslandsmeistarar en ekki bikarmeistarar ef ég væri eins úrslitamiðaður í deildinni!“
— Það var 3-0 sigur hér á móti Fram og þið unnuð Þrótt í síðasta leik. Fannst þér þetta þægilegur sigur í dag?
„Mér finnst staðan á liðinu mjög góð, en ég ætla að fá að vera ósammála því að þetta hafi verið þægilegur sigur. Hann var mjög óþægilegur sigur, en hann var góður.
Það er búið að vera mikið af breytingum. Við vorum undirbúin fyrir að við vissum að við myndum ganga í gegnum miklar breytingar í júlí. Lykilatriðið var bara að vera samkeppnishæft lið og við trúðum því að við gætum smíðað annað samkeppnishæft lið í júlí þegar allar þessar breytingar myndu ganga í gegn. Mér finnst við bara vinna það vel og við erum að koma mjög vel út úr þessu breytingaskeiði. Mér fannst við mjög öflugar í dag og ég er bara spenntur fyrir framhaldinu.“
— Er nýi framherjinn kominn til að skora mörkin, eða þarftu áfram að treysta á mörk aftar af vellinum?
„Ég veit ekki hvað ég er búinn að spila mörgum sóknarmönnum í sumar, sko, þetta eru einhverjir sjö leikmenn sem hafa spilað sóknarstöðuna og flestir kannski þekktari fyrir störf aftar á vellinum.
Ég náttúrulega vona það. Mér finnst hún vera að koma vel inn í þetta, hún er með marga eiginleika sem við höfum verið að sækjast eftir í vetur og fundum kannski ekki þann leikmann á markaðnum fyrr en núna. En mér finnst við hafa öfluga sóknarmenn sem eru með öðruvísi eiginleika, þannig ég er bara spenntur að sjá hvernig við mixum þessu öllu saman. Hún er einstök innan hópsins hjá okkur hvað hún kemur með á borðið allavega.“
— Það er svolítið í úrslitaleikinn gegn Þrótti. Býstu við að vera úrslitamiðaður þar líka?
„Ég hugsa það sko, ég gef ekkert upp! En ég mun hafa einhverjar vikur til að meta þetta. Jú, ég held að við verðum að fara í þann leik til að reyna að vinna hann.“






