Miðvikudagur 31. júlí 2002 kl. 09:34
Öruggur Njarðvíkursigur á Létti

Njarðvíkingar sigruðu Létti 4-1 í 2. deild karla í knattspyrnu í gær en leikurinn fór fram á heimavelli Léttis. Sævar Gunnarsson skoraði tvö marka Njarðvíkur og Snorri Már Jónsson og Óskar Hauksson sitt markið hvor. Njarðvíkingar styrktu með sigrinum stöðu sína í deildinni, hafa 27 stig og eru með fjórum stigum meira en næsta lið fyrir ofan sem er KS.