Öruggur Keflavíkursigur á Grindavík
Keflavík fór langt með að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Dominos-deild kvenna með að leggja Grindavík af velli í kvöld, 86-58. Leikurinn var spennandi í fyrri hálfleik og leiddi Keflavík með tveimur stigum í hálfleik, 37-35.
Í síðari hálfleik gengu Keflavíkurstúlkur á lagið og unnu að lokum 28 stiga sigur. Jessica Jenkins var stighæst hjá Keflavík með 26 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir kom næst með 14 stig. Hjá Grindavík skoraði Crystal Smith 18 stig.
Njarðvík mætti Haukum á heimavelli. Eftir spennuleik höfðu gestirnir úr Hafnarfirði sigur, 63-68. Njarðvík leiddi í hálfleik, 34-26. Haukastúlkur voru sterkari í síðari hálfleik og unnu góðan sigur. Lele Hardy var stigahæst hjá Njarðvík með 25, tók einnig 21 frákast og gaf 9 stoðsengingar. Erna Hákonardóttir skoraði 16 stig.
Keflavík-Grindavík 86-58 (18-18, 19-17, 30-11, 19-12)
Keflavík: Jessica Ann Jenkins 26/5 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 14/8 stoðsendingar/5 stolnir, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 12/11 fráköst/4 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 10/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 10/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 8, Aníta Eva Viðarsdóttir 3, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 3.
Grindavík: Crystal Smith 18/4 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 8/4 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 8, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 6, Helga Rut Hallgrímsdóttir 6/8 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 3, Eyrún Ösp Ottósdóttir 3, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 2/8 fráköst, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2, Julia Lane Figueroa Sicat 2.
Njarðvík-Haukar 63-68 (12-13, 22-13, 11-19, 18-23)
Njarðvík: Lele Hardy 25/21 fráköst/9 stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 16, Svava Ósk Stefánsdóttir 10, Salbjörg Sævarsdóttir 6/4 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 6.
Staðan í deildinni:
1 Keflavík 23 20 3 1809 - 1543 40
2 Snæfell 23 18 5 1663 - 1422 36
3 KR 23 15 8 1550 - 1504 30
4 Valur 23 12 11 1528 - 1470 24
5 Haukar 23 11 12 1581 - 1609 22
6 Njarðvík 23 7 16 1596 - 1787 14
7 Grindavík 23 6 17 1563 - 1731 12
8 Fjölnir 23 3 20 1608 - 1832 6