Öruggir sigrar hjá Suðurnesjaliðunum
Njarðvík og Grindavík unnu góða sigra í Lengjubikar karla í körfuknattleik í kvöld. Njarðvík hafði betur gegn Val í Ljónagryfjunni 102-69. Valsmenn byrjuðu leikinn betur en Njarðvíkingar fundu taktinn í öðrum leikhluta og unnu öruggan sigur.
Ungu strákarnir í liði Njarðvíkur voru stigahæstir. Maciej Stanislav Baginski skoraði 18 stig, Elvar Már Friðriksson var með 17 stig og Hjörtur Hrafn Einarsson skoraði 14 stig.
Í Grindavík lentu heimamenn í nokkrum vandræðum með Skallagrím sem hafði forystu í hálfleik 44-52. Grindvíkingar spýttu í lófana í síðari hálfleik og unnu öruggan 104-79 sigur. Samuel Zeglinski var sigurhæstur með 22 stig, Aaron Broussard kom næstur með 21 stig og Ómar Örn Sævarsson skoraði 18 stig. Hér að neðan má sjá stigaskor hjá liðunum í kvöld og stöðuna í þeirra riðlum.
Njarðvík-Valur 102-69 (21-25, 28-19, 29-8, 24-17)
Njarðvík: Maciej Stanislav Baginski 18, Elvar Már Friðriksson 17/4 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 14/4 fráköst, Kristján Rúnar Sigurðsson 14/5 fráköst, Marcus Van 10/9 fráköst/3 varin skot, Jeron Belin 9, Óli Ragnar Alexandersson 6/8 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 6, Ágúst Orrason 4, Magnús Már Traustason 2, Friðrik E. Stefánsson 2/6 fráköst.
Valur: Chris Woods 28/11 fráköst, Kristinn Ólafsson 9, Atli Rafn Hreinsson 9/6 fráköst, Benedikt Blöndal 8, Þorgrímur Guðni Björnsson 8, Rúnar Ingi Erlingsson 6/5 fráköst/12 stoðsendingar, Birgir Björn Pétursson 1/7 fráköst.
Grindavík-Skallagrímur 104-79 (21-27, 23-25, 35-14, 25-13)
Grindavík: Samuel Zeglinski 22/5 fráköst/5 stoðsendingar, Aaron Broussard 21/9 fráköst/5 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 18/6 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 17/5 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 13, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7, Davíð Ingi Bustion 6.
Skallagrímur: Carlos Medlock 21/4 fráköst/5 stoðsendingar, Haminn Quaintance 18/13 fráköst, Trausti Eiríksson 11/7 fráköst, Sigmar Egilsson 10/4 fráköst, Orri Jónsson 9, Davíð Guðmundsson 5, Davíð Ásgeirsson 3, Birgir Þór Sverrisson 2.
Staðan í A-riðli:
1 Grindavík 2 2 0 196 - 149 4
2 Skallagrímur 2 1 1 186 - 202 2
3 Keflavík 2 1 1 203 - 177 2
4 Haukar 2 0 2 140 - 197 0
Staðan í D-riðli:
1 Þór Þ. 2 2 0 189 - 152 4
2 ÍR 2 1 1 169 - 168 2
3 Njarðvík 2 1 1 170 - 162 2
4 Valur 2 0 2 145 - 191 0