Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Föstudagur 13. desember 2002 kl. 15:10

Örninn í úrslit í 50m baksundi

Örn Arnarson hefur tryggt sér sæti í úrslitum í 50 m baksundi á Evrópumeistaramótinu í Riesa í Þýskalandi. Örn náði fimmta besta tímanum í undanúrslitunum rétt áðan, 24,87 sek. Það er 8/100 úr sekúndu frá Íslandsmetinu sem hann á. Úrslitasundið verður háð rétt fyrir klukkan fjögur á eftir en í millitíðinni syndir Örn í undanúrslitum í 100 m skriðsundi.Besta tímanum í undanúrslitunum náði heimsmethafinn Thomas Rupprath frá Þýskalandi, 23,66 og var hann eini sundmaður sem fór vegalengdina á skemmri tíma en 24 sekúndur. Örn synti í fyrri riðli undanúrslitanna, viðbragð hans var slakt en hann náði að vinna það upp með snörpum spretti. Frétt af mbl.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024