Bygg
Bygg

Íþróttir

Miðvikudagur 7. ágúst 2002 kl. 21:17

Örninn hefur titilvörnina á föstudag á Hellu

Örn Ævar Hjartarson, Íslandsmeistari í golfi hefur titilvörnina á Strandarvelli á Hellu á morgun, fimmtudag. Örn kom til landsins í fyrradag og var við æfingar á Strandarvelli í gær. „Ég hef aðeins farið sex sinnum í golf frá því í apríl þegar golftímabilinu í skólanum lauk því ég var að ljúka náminu og einbeita mér að því“, sagði Íslandsmeistarinn.
Örn varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í fyrra eftir að hafa verið nálægt því árið 1999 á Hvaleyrinni en þá tapaði hann í umspili við Björgvin Sigurbergsson. En hvernig leggst titilvörnin í hann? „Bara ágætlega þó ég sé búinn að spila lítið. Þetta er alltaf það sama. Sveifla aftur og fram“, sagði Örn og hló.
Allir bestu Suðurnesjamennirnir verða í eldlínunni á Strandarvelli þar á meðal félagar Arnar, Helgi B. Þórisson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Helgi Dan Steinsson og fleiri. Í kvennaflokki verður Karen Sævarsdóttir meðal keppenda en hún sigraði átta ár í röð. Hún hefur undanfarin ár verið við nám og störf í Bandaríkjunum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn