Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Örninn hefur sig til flugs
Fimmtudagur 10. ágúst 2006 kl. 14:33

Örninn hefur sig til flugs

Örn Ævar Hjartarson er Íslandsmeistari í holukeppni í golfi 2006 og síðasta sunnudag setti hann vallarmet á Hamarsvelli í Borgarnesi á opna SPM-mótinu. Lítið hefur bólað á Erni síðustu misseri í golfinu en nú hefur Örninn brýnt klærnar og er mættur aftur til leiks, afslappaður og leikur áhyggjulaust golf.
 
Örn lék til úrslita við Ólaf Má Sigurðsson á Grafarholtsvelli síðasta föstudag og réðust úrslitin ekki fyrr en á síðustu holunni. Par dugði Erni til sigurs á lokaholunni og hann fagnaði sínum fyrsta stórtitli síðan 2001 þegar hann vann höggleikinn það árið. „Kröfurnar sem ég geri til mín í dag eru allt öðruvísi en hér áður fyrr og nú má segja að ég leiki áhyggjulaust golf,“ sagði Örn Ævar í samtali við Víkurfréttir. „Ef eitthvað klikkar þá klikkar það bara, hlutirnir eru mun einfaldari þegar hugarfarið er þannig,“ sagði Örn en hann brosti sínu breiðasta á föstudag þegar sigurinn í holukeppninni var í höfn.
 
Vallarmet í Borgarnesi
„Ég var að spila alveg rosalega vel og þetta var hringur hjá mér sem hefði getað endað mun betur. Ég átti séns á fugli á hverri einustu holu,“ sagði Örn sem leikið hefur 15 hringi á 14 dögum og kvartar ekki undan þreytu þó álagið hafi verið töluvert undafarna daga. Örn lék á 66 höggum á Hamarsvelli í Borgarnesi en völlurinn var áður 9 holur en er nú 12 holur. Þegar völlurinn var 9 holur átti Kristinn G. Bjarnason vallarmetið með 66 högg.
 
Sveitakeppnin hefst á morgun
 Sveitakeppnin í golfi hefst á Hólmsvelli í Leiru á morgun þar sem lið Golfklúbbs Suðurnesja leikur á heimavelli. GS-menn hafa ekki riðið feitum hesti frá sveitakeppninni síðustu ár en þeir eru raunsæir og ætla halda sínu sæti í 1. deild. „Í sveitakeppninni verða leiknir tveir hringir á dag, við ætlum okkur að vera áfram í 1. deild en í Leirunni erum við til alls líklegir,“ sagði Örn en í sveitakeppninni er keppt eftir holukeppnis fyrirkomulaginu.
 
Atvinnumennska framundan?
„Ég ætla ekki að líta til baka og sjá eftir því að hafa ekki reynt við atvinnumennskuna,“ sagði Örn aðspurður um málið. „Það er meiri tími til þess að huga að atvinnumennskunni núna, hér áður fyrr var ég að vinna og í skóla. Ég þarf að ræða málin við fjölskylduna og það eru margir möguleikar í boði,“ sagði Örn og nefndi m.a. sænsku mótaröðina og Evrópumótaröðina. „Á góðum degi er ég alls ekkert verri en hver annar kylfingur,“ sagði Örn að lokum og það mætti kalla þessi lokaorð nokkuð hógvær þar sem Örninn hefur staðið vel undir nafni upp á síðkastið. Að lokinni sveitakeppni tekur Örn svo þátt í lokamótinu á Kbbanka mótaröðinni þar sem hann gæti með góðum árangri náð þriðja sætinu en hann er í 5. sæti um þessar mundir.

Mynd: Kylfingur.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024