Örn og Heiða efst Suðurnesjamanna í Leirunni
Þriðja stigamót Kaupþings mótaraðarinnar í golfi fór fram á Hólmsvelli í Leiru um helgina þar sem Haraldur Heimisson úr GR hafði sigur í mótinu eftir bráðabana gegn Davíð Má Vilhjálmssyni úr GKj. Örn Ævar Hjartarson kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja hafnaði í 3. sæti í mótinu en félagi hans úr GS Guðmundur Rúnar Hallgrímsson hafnaði í 8. sæti.
Ragnhildur Sigurðardóttir frá GR hafði sigur í kvennaflokki en hún lauk keppni á 236 höggum en Nína Björk Geirsdóttir úr GKj hafnaði í 2. sæti í mótinu á 237 höggum. Eini kvenkylfingurinn af Suðurnesjum í mótinu var Heiða Guðnadóttir GS en hún hafnaði í 5. sæti á 242 höggum.
Nánar um mótið í máli og myndum á www.kylfingur.is
