HSS
HSS

Íþróttir

Örn í æfingaferð landsliðsins til Orlando
Þriðjudagur 8. janúar 2008 kl. 11:51

Örn í æfingaferð landsliðsins til Orlando

12 afrekskylfingar fara í æfingaferð á vegum Golfsambands Íslands til Orlando í Bandaríkjunum 15. janúar og dvelja þar til 23. janúar. Hópurinn verður á Eagle Creek og mun Svíinn Anders Forsbrand m.a. heimsækja hópinn og vera með kennslu í stutta spilinu fyrir utan hefðbundnar æfingar sem Staffan Johansson landsliðsþjálfari sér um. Liðsstjóri í ferðinni verður Ragnar Ólafsson. Suðurnesjakylfingurinn frá GS, Örn Ævar Hjartarson, verður í hópnum.

 

Þeir sem fara í æfingaferðina til Orlando eru:

Kristján Einarsson GKj

Örn Ævar Hjartarson GS

Tinna Jóhannsdóttir GK

Valdís Þóra Jónsdóttir GL

Elísabet Oddsdóttir GR

Sigurþór Jónsson GR

Ólafur Loftsson NK

Ragna Björk Ólafsdóttir GK

Stefán Már Stefánsson GR

Pétur Freyr Pétursson GR

Heiðar Davíð Bragason GR

Sigmundur Einar Másson GKG

--

Staffan Johansson þjálfari

Ragnar Ólafsson liðsstjóri

 

www.kylfingur.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn