Örn Ævar lék besta hringinn í gær
Flatirnar hafa reynst kylfingum erfiðar á Hólmsvellinum í Leiru og segja keppendur á Íslandsmótinu þær mjög hraðar. Þar liggur eflaust skýringin á bak við púttfjölda sumra kylfinga en heimamaðurinn Örn Ævar Hjartarsson átti fæstu púttin í gær, en þau voru 26 samtals. Hann átti einnig besta hringinn í gær sem hann lék á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari.
Sigurður Rúnar Ólafsson, kylfingur úr GKG, var með næst fæstu púttin í gær eða 27 - hann lék á pari. Á eftir honum koma jafnir Elfar Halldórsson úr GA og Sturla Ómarsson úr GR með 29 pútt.
Sprengt í Leirunni
Orðið „sprengja" í golfi er eitthvað sem kylfingar vilja allra síst heyra talað um en þær eru þó nokkrar sem læðast inn um annars ágætt skor kylfinga. Í gærg fengu nokkrir kylfingar „sprengju" en hún sprakk hvað mest hjá Sigmundi Einari Mássyni úr GKG, en hann fékk níu högg á fjórðu holu Hólmsvallar sem þekkt er fyrir miklar sprengingar. Hann sló boltanum tvisvar í vatnið fyrir fram flötina og þurfti því tvisvar að taka víti.
Á meðal kvenna voru þær Helena Árnadóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir sem fengu 8 högg í gær. Sú fyrrnefnda sprengdi á sjöttu holu en Valdís á þeirri fjórðu.
Fuglarnir komu á 14. braut en ernirnir á 1. braut
Konurnar voru ekki í miklum „arnarham" í dag en engin þeirra fékk örn á þriðja keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik. Þær voru aftur á móti með eitthvað af fuglum og komu þeir flestir til þeirra á 14. braut en sex konur af 18 fengu fugl á þeirri holu. Þær voru Ólöf María Jónsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Anna Lísa Jóhannsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Arna Rún Oddsdóttir og Guðfinna Halldórsdóttir.
Karlarnir voru þó hrifnari af byrjunarholu Hólmsvallar en þar fengust flestu ernirnir í gær en þeir voru fimm samtals. Fjórir þeirra komu á 1. holu og einn á 17. holu. Þeir sem fengu örn á 1. holu voru þeir Sigurpáll Geir Sveinsson, Björgvin Sigurbergsson, Haukur Jónsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Það var Einar Haukur Óskarsson sem fékk örn á 17. holu.
Mynd/Víkurfréttir.is: Örn Ævar Hjartarson notaði aðeins 26 pútt á hringum í gær, sem hann lék á 69 höggum.