Örn Ævar efstur á fyrsta móti íslensku mótaraðarinnar
Um helgina fer fram fyrsta stigamótið á íslensku mótaröðinni í golfi en leikið er á Hólmsvelli í Leirunni. Það er Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja sem er í efsta sæti mótsins á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hann er í efsta sætinu ásamt Ólafi Birni Loftssyni úr NK.
Mótið er fyrsta mót ársins á íslensku mótaröðinni og tilvalið að það færi fram á Hólmsvelli í Leirunni. Völlurinn kemur betur undan vetri en oft áður og kylfingar almennt ánægðir með völlinn. Jarðskjálftar á Suðurnesjum hafa ekki valdið neinum taugatitringi meðal kylfinga sem einbeita sér alfarið að spilamennskunni.
VF-MYND/JJK: Örn Ævar Hjartarson er að gera góða hluti í Leirunni.