Íþróttir

Opna Sandgerðismótið í pílu um helgina
Fimmtudagur 28. ágúst 2014 kl. 09:33

Opna Sandgerðismótið í pílu um helgina

Opna Sandgerðismótið í pílu fer fram á laugardag kl 13:00 í píluaðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar.
Húsið opnar kl 12 og spilaður er 501 einmenningur í riðlum og svo hreinn útsláttur.

Ef næg þátttaka næst verða bæði A-úrslit og b-úrslit. Vinningar verða fyrir fjögur efstu sæti, hæsta útskot, fæstar pílur og flest 180. Sigurverari fær nafn sitt á farandbikar sem geymdur er í húsnæði Pílufélags Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skráning er hjá Helga Magnússyni í síma 660-8172 eða á staðnum, skráning lýkur 15 mín fyrir keppni.