Bygg
Bygg

Íþróttir

Ondo tryggði Grindvíkingum þrjú stig
Mánudagur 21. júní 2010 kl. 22:47

Ondo tryggði Grindvíkingum þrjú stig


Grindvíkingar sigruðu Hauka, 3-2, í botnslag 8. umferðar Pepsi-deildar karla á Vodafone vellinum nú í kvöld. Eftir leikinn eru Grindvíkingar í 11. sæti með 6 stig, aðeins einu stigi á eftir Selfyssingum í 10. sætinu.
Leikurinn fór rólega af stað og lítið var um hættulegar sóknir. Á 18. mínútu kom Arnar Gunnlaugsson Haukum yfir eftir að þeir Sam Mantom höfðu spilað sig inn í teig Grindvíkinga. Giles Ondo var ekki langt frá því að jafna metin fyrir Grindavík á 33. mínútu þegar hann átti glæislegt skot á mark heimamanna en Daði Lárusson sá við skoti hans og varði glæsilega. Annað mark leiksins kom á 42. mínútu og var þar á ferðinni Hilmar Geir Eiðsson að skora annað mark Hauka. Arnar Gunnlaugsson sendi knöttinn inn í teiginn þar sem Hilmar tók við honum og skaut honum í stöngina og inn. Hálfleikstölur voru því 2-0 fyrir Hauka.
Síðari hálfleikurinn fór heldur hægt af stað eins og sá fyrri. Á 62. mínútu fengu Grindvíkingar hornspyrnu. Boltinn lenti á Auðunni Helgasyni sem skallaði honum inn í teig þar sem Orri Freyr Hjaltalín tók við honum og afgreiddi hann í netið og staðan því orðin 2-1. Annað mark Grindvíkinga kom á 78. mínútu þegar Scott Ramsey renndi boltanum fyrir Gilles Ondo sem gerði sér lítið fyrir og lagði boltann í autt mark heimamanna. En Ondo var ekki hættur því aðeins um mínútu síðar skoraði hann annað mark og kom hann Grindvíkingum yfir en í þetta skiptið eftir sendingu frá Jósef Kristni. Lokatölur voru því 2-3 og annar sigur Grindvíkinga í sumar í höfn.

Víkurfréttamynd/Pket - Ondo í leik gegn Keflavík fyrr í sumar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn