Omnis heitir á Keflavík
Fyrirtækið Omnis hefur ákveðið að heita 200 þúsund krónum á Keflavíkurliðið takist því að sigra Landsbankadeildina. Björn Ingi Pálsson hjá Omnis segist hafa mikla trú á liðinu. „Liðið er núna í frábærri stöðu til að fara alla leið, enda hefur það verið að spila skemmtilegan og árangursríkan fótbolta í sumar. Við viljum hvetja önnur fyrirtæki í Reykjanesbæ og víðar til að heita á liðið og stuðla að því að Íslandsmeistaratitillinn endi í Reykjanesbæ þetta árið.“
Knattspyrnudeild Keflavíkur hvetur fyrirtæki til þess að fylgja þessu góða fordæmi Omnis enda þarf lið Keflavíkur á allri þeirri hvatningu að halda sem það getur fengið.
Hægt er að senda áheit á [email protected]
VF-MYND/Hilmar Bragi