Ómar og Davíð meiddir hjá Grindavík
Ómar Örn Sævarsson hefur verið fjarverandi í Grindavíkurliðinu upp á síðkastið sökum meiðsla í nára..
Ómar Örn Sævarsson hefur verið fjarverandi í Grindavíkurliðinu upp á síðkastið sökum meiðsla í nára. Eins og staðan er í dag þá sér hann ekki fram á að ná fyrsta leik með Grindavík gegn Skallagrím en einvígi liðanna hefst á föstudag. Karfan.is greinir frá þessu.
„Við vonum bara að það verði eini leikurinn sem ég missi af,“ sagði Ómar við Karfan.is í morgun. „Maður er að reyna að vera skynsamur en ef þetta batnar ekki þá spilar maður bara meiddur. Maður yrði ekki fyrsti leikmaðurinn í heiminum til að þurfa að bíta aðeins á jaxlinn í úrslitakeppni,“ sagði Ómar en hann er ekki einn á meiðslalista Grindavíkur því Davíð Ingi Bustion er enn fjarverandi sökum handarmeiðsla.