Ómar kominn aftur til Keflavíkur
Ómar Jóhannsson er nýráðinn markmannsþjálfari Keflavíkur. Ómar hefur verið aðstoðarþjálfari og leikmaður hjá Njarðvík síðastliðin 2 ár og kom inn sem markmannsþjálfari í lok síðasta tímabils hjá Keflavík þegar Sigmar Ingi Sigurðarson lét af störfum.
Hann hefur leikið 185 leiki með Keflavík í meistaraflokk, 9 leiki með U17, 6 leiki með U19 og 19 leiki með U21 landsliðum Íslands. „Það er mikið fagnaðarefni að fá Ómar í þjálfarateymi Keflavíkur í það mikla starf sem er framundan við að byggja liðið upp og koma því í deild þeirra bestu og gaman frá því að segja að hann kirjaði "Ég er komin heim" þegar að hann skrifaði undir.“ segir í fréttatilkynningu frá Knattspyrnudeild Keflavíkur.