Ómar féll á lyfjaprófi – Í sex mánaða keppnisbann?
- Drakk orkudrykk fyrir bikarúrslitaleikinn sem innihélt ólöglegt efni
Ómar Örn Sævarsson, leikmaður meistaraflokks Grindavíkur í körfuknattleik, féll á lyfjaprófi sem hann undirgekkst að loknum bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar í febrúar s.l. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu UMFG.
Ómar drakk orkudrykkinn Jack 3D fyrir leikinn en í þeim drykk er að finna ólöglegt örvandi efni sem mældist í Ómari eftir leikinn. Stjórn Körfuknattleiksdeildar UMFG harmar mjög þetta atvik og fordæmir alla notkun ólöglegra efna í íþróttum.
„Það er hins vegar ljóst að stjórnin styður Ómar Örn heilshugar í þessu máli. Ómar vissi ekki að um væri að ræða drykk sem innihélt ólöglegt efni. Ómar hefur þrívegis áður gengist undir lyfjapróf og ávallt mælst hreinn. Enda taldi hann þegar honum var tilkynnt niðurstaðan, að einhverjir vinir hans væru að gera at í honum. Allir sem þekkja Ómar vita að hann þarf síst af öllu á örvandi lyfjum að halda og væri nær að hann tæki inn eitthvað róandi. Ómar er miður sín út af málinu og hefur gert hreint fyrir sínum dyrum gagnvart stjórn, þjálfara og leikmönnum Grindavíkurliðsins. Ómar kom fram af heilindum í öllum samskiptum við lyfjaráð og afhenti þeim umrætt efni og játaði strax að hafa neytt drykkjarins sem inniheldur efnið. Ómar hefur frá því hann kom til Grindavíkur verið til mikillar fyrirmyndar bæði innan vallar og utan. Stjórn körfuknattleiksdeildar hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Ómar á komandi tímabilum.
Jafnframt er ljóst að leikmaður ber ábyrgð á því hvað hann lætur ofan í sig. Ekki er enn búið að dæma í málinu en krafa lyfjaráðs er að leikmaðurinn verði dæmdur í 6 mánaða bann. Bráðabirgðabann tók gildi um leið og niðurstaða lyfjaprófs hafði verið kynnt Ómari. Ómar og stjórn körfuknattleiksdeildar munu una niðurstöðu dómstóls ÍSÍ.
Framundan eru lokaúrslit í Dominos deildinni og fyrsta viðureign við Stjörnuna fer fram í kvöld. Ómars verður sárt saknað en liðið og stjórn mun ekki dvelja lengur við þetta atvik heldur einbeita sér að því verkefni að halda Íslandsmeistaratitlinum í Grindavík en þar hefur farið afar vel um hann síðastliðið ár,“ segir í yfirlýsingu UMFG um málið.