Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Ólöf Edda með 2 telpnamet á Gullmóti KR
Mánudagur 14. febrúar 2011 kl. 09:53

Ólöf Edda með 2 telpnamet á Gullmóti KR

Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, sundmaður ÍRB, náði þeim glæsilega árangri að setja tvö íslensk telpnamet í 50 og 100 metra flugsundi á Gullmóti KR sem fram fór um helgina en mótið er það stærsta í íslensku mótaröðinni.

Einnig voru sundmenn úr röðum ÍRB í fimm efstu sætunum í 50 metra bringusundi í flokki 10 ára og yngri þar sem Stefanía Sigurþórsdóttir, Jóhanna Matthea Jóhannesdóttir og Klaudia Malesa voru á verðlaunapalli. Auk þeirra kræktu þau Magnús Guðjón Jensson og Birna Hilmarsdóttir sér í verðlaun í þessum flokki.

Þeir sundmenn sem kræktu sér í gullverðlaun frá ÍRB voru eftirfarandi:
Gunnar Örn Arnarson
Baldvin Sigmarsson
Berglind Björgvinsdóttir
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir
Íris Ósk Hilmarsdóttir
Sunneva Dögg Friðriksdóttir
Svanfríður Steingrímsdóttir
Stefanía Sigurþórsdóttir
Jóhanna Matthea Jóhannesdóttir
Meyjasveit ÍRB (Sunneva, Svanfríður, Sylwia Sienkiewicz, Sandra Ósk Elíasdóttir og Ingunn Eva Júlíusdóttir)
Sveinasveit ÍRB (Ísak Daði Ingvason, Eiríkur Ingi Ólafsson, Hreiðar Máni Ragnarsson og Ingi Þór Ólafsson)

Mynd: Ólöf Edda (til hægri) setti tvö íslensk telpnamet á mótinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024