Íþróttir

Ólík örlög Suðurnesjaliðanna í Lengjudeildinni í kvöld
Lýsing kvöldsins frá Grindavík hljóðaði upp á markaleysi. VF/hilmarbragi
Mánudagur 17. ágúst 2026 kl. 20:25

Ólík örlög Suðurnesjaliðanna í Lengjudeildinni í kvöld

Tveir leikir fóru fram í 19. umferð Lengjudeildar karla í kvöld þar sem Suðurnesjaliðin Grindavík og Njarðvík voru í eldlínunni.

ÍR 3 – 1 Njarðvík
Njarðvíkingar máttu þola 3-1 ósigur gegn ÍR á Þarfaþingsvellinum. Heimamenn í ÍR tóku forystuna á 20. mínútu með marki frá Emil Nóa Sigurhjartarsyni. Njarðvík jafnaði metin snemma í síðari hálfleik þegar Arnleifur Hjörleifsson skoraði á 46. mínútu. ÍR-ingar tóku hins vegar völdin á ný og tryggðu sér sigurinn með mörkum frá Guðjóni Mána Magnússyni á 60. mínútu og Bergvini Fannari Helgasyni á 76. mínútu. Njarðvík situr áfram í 4. sæti deildarinnar með 32 stig.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Grindavík 0 – 0 Grótta.
Á Stakkavíkurvelli skildu Grindavík og Grótta jöfn í markalausum leik. Voru þetta mikilvæg stig í baráttunni en hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið. Eftir leikinn er Grindavík í 9. sæti með 20 stig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn