Bygg
Bygg

Íþróttir

Ólétt á árbakkanum veiddi stórlax
Guðrún með laxinn glæsilega sem tók fluguna Blue Sunray.
Miðvikudagur 6. september 2017 kl. 15:43

Ólétt á árbakkanum veiddi stórlax

- Guðrún Sædal skellti veiðistönginni á óléttubumbuna og landaði 100 sm. draumalaxi

Það er draumur allra laxveiðimanna að veiða 100 sm. langan lax. Lang fæstum tekst það. Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, sem rekur Blue Car bílaleiguna með Magnúsi Þorsteinssyni manni sínum, ákvað að setja önnur viðmið þegar hún fór í laxveiði í fyrsta sinn, núna í ágústmánuði. Hún veiddi tvo laxa og gerði sér lítið fyrir og landaði einum 100 sm. „Ég tyllti bara stönginni á óléttubumbuna og dró hann hægt og rólega inn,“ sagði hún í spjalli við Víkurfréttir.

Guðrún er gengin sex mánuði á leið með sitt þriðja barn en lét það ekki stoppa sig í laxveiðinni. Fór með skemmtilegum hópi í Víðidalsá. „Ég hef ég aldrei farið í laxveiði áður þannig að það er hægt að segja að þetta hafi gengið vel,“ sagði hún sposk þegar við spurðum út í veiðihæfileikana.
Fyrsti lax sem veiðimaður veiðir er kallaður maríulax og Guðrún var ekkert að tvínóna við þetta og setti fljótlega í fyrsta laxinn sinn, fallega hrygnu.
„Ég fékk maríulaxinn á laugardeginum í blíðskaparveðri í Faxaholu, hann tók micro Sunray fluguna og baráttan stóð yfir í kringum 10 mínútur. Hann var 63 sm., vel silfraður og nýgenginn. Og að sjálfsögðu var ugginn étinn síðar um kvöldið,“ segir Guðrún en það er hefð hjá laxveiðimönnum.

Hver er svo sagan á bakvið þennan 100 sm.?
Daginn eftir náði ég að næla í 100 cm hæng, baráttan við hann tók 17 mínútur en átökin voru mikil. Hann tók fluguna Blue sun ray sem við vorum að prófa í fyrsta skipti. Jói Hafnfjörð, snillingur með meiru í Víðidalsá, aðstoðaði mig við að koma honum í háfinn og var mikil gleði að ná að landa þessum stóra hæng. Hann var veiddur á einum vinsælasta stað í ánni, Dalsárósum. Honum var sleppt þannig að um að gera fyrir aðra að reyna við hann,“ sagði laxveiðikonan lukkulega.



Guðrún í akjsón í Víðidalsá.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Maríulaxinn, 63 sm. hrygna tók micro Sun Ray.